Sigríður Sunna Reynisdóttir útskrifaðist með B.A. gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands vorið 2007. Síðustu önnina var hún skiptinemi við Charles University í Prag og sat þar fræðilegt námskeið um tékkneskt brúðuleikhús. Einnig tók hún námskeið í tékkneskri strengjabrúðugerð undir stjórn Mireks Trejtnar.
Sigríður Sunna hefur tvívegis starfað með Strengjaleikhúsi Messíönu Tómasdóttur. Hún var meðhöfundur að brúðum og grímum í óperunni Skuggaleik sem Strengjaleikhúsið setti upp í samstarfi við Íslensku Óperuna haustið 2006. Veturinn 2007-2008 var hún svo brúðustjórnandi í tón-og brúðuverkinu Spor Regnbogans sem sýnt var fyrir leikskólabörn og yngstu bekki grunnskólanna.
Sumarið 2007 vann Sigríður Sunna hjá Bernd Ogrodnik við gerð prufumyndar fyrir brúðukvikmyndina Nomi.
Að lokum má nefna að Sigríður Sunna hefur flutt pistla í Víðsjá á RÚV um brúðuleikhús.
Sigríður Sunna er ritari UNIMA á Íslandi.